Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Fulltrúar Kvenréttindafélagsins í nefndum og ráðum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stjórn Hallveigarstaða
Formaður og varaformaður. Aðrir verða kosnir á stjórnarfundi 11. apríl 2011.

Jafnréttisráð
Margrét Steinarsdóttir.

NOKS (Nordiske kvinder i samarbejde-norrænt samstarf)
Framkvæmdastjórn KRFÍ

International Alliance of Women (IAW)
Formaður og framkvæmdastjórn. Þorbjörg I. Jónsdóttir, fyrrum form. KRFÍ var kjörin gjaldkeri IAW á aðalþingi samtakanna í S-Afríku í nóvember 2010.

Mannréttindaskrifstofa Íslands
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, til vara Anna G Ólafsdóttir

Mæðrastyrksnefnd
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir er form. nefndarinnar
Helena Steinarsdóttir

Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir

Landvernd
Hildur Helga Gísladóttir

Skotturnar - félag um 24. október
Halldóra Traustadóttir, framkvæmdastjóri KRFÍ

Menningar- og minningarsjóður kvenna
Menningar- og minningarsjóður var stofnaður 27. september 1941 í minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur með því að börn hennar gáfu dánargjöf frá móður þeirra en hugmyndina að stofnun sjóðsins hafði Bríet átt. Hlutverk sjóðsins er fyrst og fremst að styrkja konur til náms, jafnt hér á landi sem erlendis með náms- og ferðastyrkjum. Ennfremur að veita konum styrk til ritstarfa eða verðlauna ritgerðir, einkum um þjóðfélagsmál er varða áhugamál kvenna. Styrkjum úr sjóðnum er úthlutað einu sinni á ári.

Auk styrkveitinganna er annar þáttur í starfi MMK og ekki ómerkur, að varðveita frá gleymsku minningu mætra kvenna og karla. Alkunna er að konur er vart að finna í uppsláttarbókum fyrr en þá frá allra síðustu árum. Af þessum sökum eru allar upplýsingar um konur afar kærkomnar. Sjóðurinn hefur gefið út æviminningarbækur alls fimm bindi. Fyrsti formaður sjóðsins við stofnun 1941 var Laufey Valdimarsdóttir. 

Núverandi formaður Menningar- og minningarsjóðs kvenna er Kristín Þóra Harðardóttir. 

Aðrar í stjórn  MMK eru :
Júlíana Signý Gunnarsdóttir varaformaður
Margrét Kr. Gunnarsdóttir ritari
Esther Guðmundsdóttir gjaldkeri
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir

Varamenn eru:
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
Halldóra Traustadóttir
Helga Guðmundsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir
Silja Bára Ómarsdóttir 
 

Nefndir og hópar sem áður störfuðu innan vébanda KRFÍ:

Framkvæmdanefnd um Kvennaár 2005
Margrét K. Sverrisdóttir, Margrét Steinarsdóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Þorbjörg Inga Jónsdóttir.

Söguritunarsjóður
Söguritunarsjóður stóð fyrir útgáfu bókarinnar " Veröld sem ég vil" sem að Sigríður Th. Erlendsdóttir ritaði og Björg Einarsdóttir safnaði myndum í.

Í stjórn Söguritunarsjóðs voru:

Inga Jóna Þórðardóttir, formaður
Esther Guðmundsdóttir
Sólveig Ólafsdóttir
Berglind Ásgeirsdóttir
Áslaug Ottesen

Kortahópur KRFÍ
Starfaði í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 1994 og upp úr því starfi fór hópurinn í kortaútgáfu og gaf m.a. út póstkort sem að til sölu eru á skrifstofunni og fleiri stöðum.

Í kortahópnum voru:

Ása María Björnsdóttir
Bryndís Hlöðversdóttir
Fanný Jónmundsdóttir
Ingveldur Ólafsdóttir
Lilja Ólafsdóttir
Soffía Guðmundsdóttir
Stefanía Traustadóttir
Þórunn Gestsdóttir

Leshópur
Yngri leshringurinn var stofnaður af áhugasömum konum í Kvenréttindafélagi Íslands um síðustu aldarmót. Leshringurinn hittist reglulega á ýmsum kaffihúsum borgarinnar u.þ.b. einu sinni í mánuði. Öðru hvoru er brugðið út af venjunni og hist heima hjá hver annarri eða fenginn gestur. Lesefni er valið í sameiningu sem að síðan var rætt um á næstu fundum á eftir. Þá fer leshringurinn einnig í leikhús og á námskeið.

Til fróðleiks er það sem lesið hefur verið á undanförnum árum:
"Z", "Kaldaljós" og " Ég heiti Ísbjörg" eftir Vigdísi Grímsdóttur
"Sögur og ljóð" safnbók Ástu Sigurðardóttur
"Minn hlátur er sorg" eftir Friðriku Benónýs um ævi Ástu Sigurðardóttur
"Móðir kona meyja" og "Þriðja ástin" eftir Nínu Árnadóttur
"The beauty myth" eftir Naomi Wolf
"Í fjötrum" og "Arabíunætur" eftir Jean Sasson
"Kæri Keith" og aðrar bækur Jóhönnu Kristjónsdóttur þ.á.m. ferðabækurnar
"Lafað í röndinni á mannfélaginu" eftir Ragnhildi Richter

Gestir á fundum hafa verið Jóhanna Kristjónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Ragnhildur Richter, cand. mag. í íslensku við Háskóla Íslands, sem komu á fundi og rætt var efni bóka þeirra sem lesnar voru fyrir þau skipti.

Leshringur KRFÍ,  yngri
Kristín Þóra Harðardóttir formaður

Leshringur KRFÍ, eldri
Sigrún Þorvarðardóttir formaður

Vorið 2008 voru lesnar eftirtaldar bækur:

  • Þúsund bjartar sólir, e. Khaled Hosseini
  • Bíbí, e. Vigdísi Grímsdóttur (Bíbí Ólafsdóttir kom sem gestur)
  • Óreiða á striga, e. Kristínu Marju Baldursdóttur

Haustið 2008 var farið á leiksýninguna Brák með Brynhildi Guðjónsdóttur, á Landnámssetrinu í Borgarfirði. Haldið upp á 15 ára afmæli leshópsins í október. Lesnar voru eftirtaldar bækur:

  • Skáld-Rósa: Ljósmóðirin Rósa Guðmundsdóttir, e. Gísla H. Kolbeins
  • Afleggjarinn, e. Auði Ólafsdóttur

Vor 2009 munu eftirfarandi bækur verða lesnar:

  • Veruleiki draumanna - endurminningar, e. Ingibjörgu Haraldsdóttur
  • Skaparinn, e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur
  • Stutt ágrip af sögu traktorsins á úkraínsku, e. Marinu Lewycka
  • Á ég að gæta systur minnar, e. Jodi Picoult
  • Glerkastalinn e. Jeannette Walls
  • Tveir húsvagnar, e. Marinu Lewycka

auk leikhúsferðar og vorferðar.

Leikhúsferðir:
"Hár og hitt" eftir Poul Portner í Borgarleikhúsinu
"Feður og synir" eftir Ivan Turgenjev
"Feitir menn í pilsum" eftir Nicky Silver
"Sumarið 37" eftir Jökul Jakobsson

Námskeið:
Fjölmennt var á námskeiðið "Að njóta leiklistar" sem haldið var af Félagi íslenskra háskólakvenna. Leiðbeinandi var Jón Viðar Jónsson gagnrýnandi.

Ferðir:
Árlega  eru farnar ferðir í sumarbústað eða annað. 


Lesefni mars 2010-mars 2011:

"Vigdís", e. Pál Valsson
"Íslandsklukkan", e. Halldór Laxness
"Bréf til Láru", "Ofvitinn" og Íslenskur aðall", e. Þórberg Þórðarson
"Ljósa", e. Kristínu Steinsdóttur
"Skáldalíf", e. Halldóra Guðmundsson.

Einnig leikhúsfer, heimsóknir og ferðir úr borginni.