|
Launajafnrétti í Ástralíu |
|
|
|
Skrifað af: Framkvæmdastjóri
|
|
Mánudagur, 06. febrúar 2012 11:39 |
|
Konur mótmæla í launamisrétti kynjanna í Sidney, Ástralíu 2010 / AFP
Laun 150.000 starfsmanna í félagsþjónustu í Ástralíu munu hækka um 19% til 41% eftir að dómur féll 1. febrúar síðastliðinn. Verkalýðsfélög leituðu til Fair Work Australia, dómstóls sem tekur á málefnum vinnumarkaðsins og kvörtuðu yfir því að starfsfólk í félagsþjónustu fær greitt lægri laun en starfsmenn í sambærilegum störfum. Áttatíu prósent starfsmanna í félagsþjónustunni í Ástralíu eru konur og verkalýðsfélögin héldu því fram að lág laun í þessum geira væri merki um launamisrétti kynjanna. Ástralía samþykkti árið 1972 lög um launajafnrétti kynjanna.
Ríkisstjórn Ástralíu studdi verkalýðsfélögin í umsókn sinni og lagði til 2 milljarða ástralska dali næstu sex árin til að borga launahækkanirnar. Júlía Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, fagnaði úrskurðinum og sagði hann vera „mikla framþróun í átt að raunverulegu launajafnrétti kvenna“. Félög atvinnurekenda hafa sagt dóminn vera „hættulegan“ og að nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að fleiri verkalýðsfélög kæri launamisrétti kynjanna.
Árið 1976 voru samþykkt jafnréttislög á Alþingi þar sem réttur karla og kvenna til sama kaups fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf var staðfestur. Þó viðhelst kynbundið launamisrétti hér á landi. Í könnun sem SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu lét gera árið 2011 kom fram að heildarlaun kvenna í fullu starfi eru 24% lægri en hjá körlum og að kynbundinn launamunur í félaginu mælist 13,2%.
Hér er hægt að lesa grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um launajafnrétti kvenna sem birtist í Fréttablaðinu 22. október 2011.
Og hér er hægt að lesa úrskurð Fair Work Australia. |
|
Þjóðlegt eldhús 2. febrúar kl. 19 |
|
|
|
Skrifað af: Framkvæmdastjóri
|
|
Miðvikudagur, 01. febrúar 2012 13:17 |
|
Verið velkomin í fyrsta Þjóðlega eldhús ársins á Hallveigarstöðum (Túngötu 14, í kjallara hússins) á morgun fimmtudaginn, 2. febrúar, kl. 19.00. Að þessu sinni verður matarmenning Indónesíu kynnt.
Allir eru velkomnir að vera með á matarkvöldunum. Vinsamlegast skráið þátttöku í tölvupósti á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
800 kr. greiðast á staðnum og er í þeim innifalinn matur, kaffi og vatn. Gos og léttvín er hægt að kaupa gegn vægu verði.
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Kvenréttindafélag Íslands bjóða upp á Þjóðlegt eldhús, þar sem við eldum saman góðan, framandi og freistandi mat frá mismunandi heimshornum. Kynnt verður ný matargerð, farið í notkun á framandi kryddjurtum og sagt frá matarmenningu ýmissa þjóða í skemmtilegum félagsskap. Konur úr samtökunum kynna landið sitt og menningu í gegnum mat, sögur og myndir. Við hvetjum allar til að taka virkan þátt bæði í undirbúningi réttana og tiltektinni eftir á:)
Verði ykkur að góðu!

|
|
Námskeiðið Women Empowering Women |
|
|
|
Skrifað af: Framkvæmdastjóri
|
|
Föstudagur, 13. janúar 2012 13:46 |
|
Þriðjudaginn 24. janúar verður haldið alþjóðlegt sjálfsstyrkingarnámskeið kvenna í Reykjavík. Women Empowering Women námskeiðið hefur verið haldið í fjölda borgum um allan heim. Námskeiðið hefst kl. 18 og er haldið á Hótel Nordica. Námskeiðið er á ensku.
Women Empowering Women verkefnið hefur það að leiðarljósi að styrkja stöðu kvenna í samfélaginu. Námskeiðin leiða saman konur úr öllum áttum og dreifa þekkingu og reynslu kvenna í stjórnunar- og áhrifastöðum. Meðal þeirra sem tala hér í Reykjavík eru Hafdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Laugar Spa og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, Rúna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Connected-Women.com, Amal Tamimi framkvæmdastjóri Jafnréttishúss, Helga Guðrún Jónasdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands og Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
Meðal efna sem tekin verða fyrir á námskeiðinu eru:
- The Growth, Power, & Fun of Empowerment
- Finding Your Passion & Turning It Into A Business
- How to Get Fit and Healthy in Simple Ways
- Secrets of a Successful Career Woman
- An Open Discussion on Gender Equality In Iceland & Abroad
Miðaverð er 2.325, og rennur hluti þeirra til íslenskra góðgerðastofnana. Til að skrá ykkur á námskeiðið, hafið þið samband við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og gefið upp nafn og símanúmer. |
|
Konur í meirihluta í ríkisstjórn |
|
|
|
Skrifað af: Framkvæmdastjóri
|
|
Miðvikudagur, 04. janúar 2012 16:04 |
31. desember 2011 var kynnt tímamótaríkisstjórn hér á landi. Í fyrsta skipti gegna fleiri konur en karlar ráðherraembættum.
Ísland er sjötta landið þar sem konur eru í meirihluta ríkisstjórnar. Finnland reið á vaðið árið 2007 en síðan þá hafa Noregur, Spánn, Cape Verde og Sviss einnig skipað ríkisstjórnir þar sem konur eru í meirihluta.
Í rannsókn sem gerð var í janúar 2010 á stjórnskipulagi 188 landa kom í ljós að konur gengdu aðeins 16,9 % af 4100 ráðherrastöðum. Mikill munur er á þátttöku kvenna í ríkisstjórnum milli heimssvæða. Konur gegndu 7,6% ráðherrastöðum í löndum Araba, 22,7% ráðherra í Evrópu allri voru konur og ef aðeins var litið til Norðurlanda, þá voru konur 49,7% ráðherra.
Auður Auðuns tók fyrst kvenna sæti á ráðherrastól hér á landi þegar hún var skipuð dóms- og kirkjumálaráðherra 1970 og gegndi hún því starfi í eitt ár. Á vef Alþingis er hægt að sjá yfirlit um alla þá sem gegnt hafa ráðherraembætti á Íslandi.
Ný ríkisstjórn frá og með 31. desember 2011 er:
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
- Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Össur Skarphéðinsson,utanríkisráðherra
- Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og samstarfsráðherra Norðurlanda
- Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
- Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
- Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
- Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
- Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 85 |