| Umsögn v. breytingar á hjúskaparlögum |
|
|
|
5. maí 2010 sendi KRFÍ etirfarandi umsögn vegna frumvarps um breytingu á hjúskaparlögum: Umsögn KRFÍ um frumvarp til laga um breytingar á hjúskaparlögum og fleiri lögum og um brottfall laga um staðfesta samvist (ein hjúskaparlög). Kvenréttindafélagi Íslands hefur borist til umsagnar ofangreint fumvarp, þingskjal 836 – 485. mál, um breytingar á hjúskaparlögum nr. 31/1993 með síðari breytingum, ásamt fleiri lögum. Kvenréttindafélag Íslands styður frumvarpið sem felur í sér bætt mannréttindi allra þegna landsins hvað varðar hjúskap og sambúð og réttindi og skyldur þeirra er til slíkra samvista stofna. |