Skip to content

Kvenréttindafélag Íslands

  • Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Ályktanir
Ályktun frá stjórn Kvenréttindafélags Íslands vegna framboðs Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til formanns Sjálfstæðisflokksins Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands fagnar því að fyrsta konan skuli hafa gefið kost á sér sem formaður í rúmlega 80 ára sögu Sjálfstæðisflokksins.

Kvenréttindafélag Íslands var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og hefur félagið frá upphafi beitt sér fyrir því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn.

Þó að mörgum af upphaflegum stefnumálum Kvenréttindafélagsins hafi verið náð, hallar enn talsvert á konur í íslenskum stjórnmálum. Er það von Kvenréttindafélagsins að með fjölgun kvenna í forystusveit stjórnmálaflokkanna, færist samfélagið nær því að byggja jafnrétti kynjanna í reynd.

Í ljósi þess hvetur stjórn félagsins konur í öllum stjórnmálaflokkum til að hvetja hverja aðra og styðja í sókn til aukinna áhrifa á vettvangi stjórnmálaflokkanna. Einnig hvetjum við flokksbræður þeirra til að leggja sitt af mörkum svo að Ísland verði áfram í fararbroddi í jafnréttismálum innan alþjóðasamfélagsins.

Hallveigarstöðum, 16. nóvember 2011

 
Ályktun um launamun kynjanna Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands skorar á aðila vinnumarkaðarins að búa í haginn fyrir innleiðingu jafnlaunastaðals hjá fyrirtækjum og stofnunum með markvissu fræðslu- og hvatningarátaki. Verið er að leggja lokahönd á staðalinn hjá Staðlaráði Íslands og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið jafnvel næsta vor. Mikilvægt er að sá tími sem til stefnu er verði nýttur til kynningar á staðlinum.

Þá mælist stjórnin eindregið til þess að stjórnvöld stuðli að innleiðingu staðalsins með skattaívilnunum eða öðrum sambærilegum ávinningi til handa þeim fyrirtækjum og stofnunum sem taka hann upp. Með hliðsjón af stöðu efnahagsmála má heita ljóst að afstaða og aðgerðir stjórnvalda eru lykilatriði fyrir framkvæmd jafnlaunastaðalsins og um þann árangur sem ná má varanlega í baráttunni gegn því þjóðarböli sem kynbundinn launamunur er. 

Hallveigarstöðum, 30. september 2011


 

 
Ályktun vegna "biskupsmálsins" Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Kvenréttindafélag Íslands lýsir yfir stuðningi við þær konur sem leita nú réttar síns gagnvart þjóðkirkjunni. Verður vart á milli séð hvort er verra, kynbundið ofbeldi sálusorgarans eða harðsnúin þöggun innan kirkjunnar. Með hliðsjón af framvindu mála er ljóst að það hefur krafist mikils hugrekkis af þeim konum sem í hlut eiga og málsvörum þeirra, að knýja fram réttláta málsmeðferð. Stjórn Kvenréttindafélagsins hvetur yfirstjórn þjóðkirkjunnar að íhuga vandlega hver lokaskref málsins verða af hennar hálfu, enda ljóst að þær málslyktir eru fordæmisgefandi fyrir þær stofnanir sem taldar eru til grunnstoða samfélagsins.

Hallveigarstöðum, 16. júní 2011
 
Ályktun KRFí og Verndar um aðstæður kvenfanga Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Kvenréttindafélag Íslands og Vernd – fangahjálp, vilja í sameiningu vekja athygli á því að aðstæður kvenfanga eru mun lakari en karlfanga. Fyrir það fyrsta er einungis eitt fangelsi í boði fyrir kvenfanga, Kvennafangelsið í Kópavogi, þar sem þrengsli eru mikil. Kvenfangar eiga ekki kost á vistun í opnu fangelsi líkt og karlfangar og möguleikar kvenna til framhalds- og starfsnáms á meðan betrunarvist þeirra stendur, eru mun lakari en karlanna. Auk þess gefast kvenföngum ekki sömu tækifæri til að stunda vinnu samhliða afplánun og karlföngum.

Kvenréttindafélag Íslands og Vernd – fangahjálp, mótmæla þessari kynbundnu mismunun á aðstæðum og fangelsisvistun karl- og kvenfanga. Það er óviðunandi að föngum sé mismunað á grundvelli kyns síns enda varðar það við lög. Fangelsun er skv. stefnu stjórnvalda ætlað að fela í sér betrunarvist í þágu viðkomandi einstaklinga og samfélagsins í heild sinni. Kvenréttindafélag Ísland og Vernd – fangahjálp, hvetja yfirvöld til þess að lagfæra aðstæður kvenfanga hið fyrsta og tryggja það að nú þegar bygging nýs fangelsis á Hólmsheiði stendur fyrir dyrum, verði aðstæður kvenfanga sem þar munu dvelja til jafns við það sem karlföngum býðst.

Reykjavík 29. september 2010.

 
Ályktun um kynfæragötun Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Kvenréttindafélag Íslands varar við svokallaðri „kynfæragötun" sem hefur færst í vöxt meðal ungra kvenna að undanförnu. Ætla má að klámvæðing samfélagsins sé rót þessarar auknu eftirspurnar. Klámvæðingin hefur síast inn í vitund kvenna jafnt sem karla og kemur t.d. glögglega í ljós í poppmenningunni og í auglýsingum. Klámvæðingin stuðlar að „normaliseringu" kláms og afleiðingum þess, s.s. kaupum á vændi, mansali, o.s.frv. Kynfæragötun getur auk þess haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar fyrir konur.

Kvenréttindafélag Íslands skorar á heilbrigðisyfirvöld að vera vel á verði, bæði hvað varðar afleiðingar þessara aðgerða svo og leyfisveitingar til handa þeim er framkvæma þær. Þykir félaginu ástæða til þess að hvetja yfirvöld til að gera úttekt á umfangi og eðli þessara aðgerða.

 

Hallveigarstöðum 15. september 2010.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 5