|
Kvenréttindafélag Íslands
Kvenréttindafélag Íslands vinnur að því að bæta réttindi kvenna. Félagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og gegndi þeirri stöðu í 20 ár. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn. |
|
|
Þriðjudaginn 24. janúar verður haldið alþjóðlegt sjálfsstyrkingarnámskeið kvenna í Reykjavík. Women Empowering Women námskeiðið hefur verið haldið í fjölda borgum um allan heim. Námskeiðið hefst kl. 18 og er haldið á Hótel Nordica. Námskeiðið er á ensku.
Women Empowering Women verkefnið hefur það að leiðarljósi að styrkja stöðu kvenna í samfélaginu. Námskeiðin leiða saman konur úr öllum áttum og dreifa þekkingu og reynslu kvenna í stjórnunar- og áhrifastöðum. Meðal þeirra sem tala hér í Reykjavík eru Hafdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Laugar Spa og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, Rúna Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Connected-Women.com, Amal Tamimi framkvæmdastjóri Jafnréttishúss, Helga Guðrún Jónasdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands og Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.
Meðal efna sem tekin verða fyrir á námskeiðinu eru:
- The Growth, Power, & Fun of Empowerment
- Finding Your Passion & Turning It Into A Business
- How to Get Fit and Healthy in Simple Ways
- Secrets of a Successful Career Woman
- An Open Discussion on Gender Equality In Iceland & Abroad
Miðaverð er 2.325, og rennur hluti þeirra til íslenskra góðgerðastofnana. Til að skrá ykkur á námskeiðið, hafið þið samband við
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og gefið upp nafn og símanúmer. |
31. desember 2011 var kynnt tímamótaríkisstjórn hér á landi. Í fyrsta skipti gegna fleiri konur en karlar ráðherraembættum.
Ísland er sjötta landið þar sem konur eru í meirihluta ríkisstjórnar. Finnland reið á vaðið árið 2007 en síðan þá hafa Noregur, Spánn, Cape Verde og Sviss einnig skipað ríkisstjórnir þar sem konur eru í meirihluta.
Í rannsókn sem gerð var í janúar 2010 á stjórnskipulagi 188 landa kom í ljós að konur gengdu aðeins 16,9 % af 4100 ráðherrastöðum. Mikill munur er á þátttöku kvenna í ríkisstjórnum milli heimssvæða. Konur gegndu 7,6% ráðherrastöðum í löndum Araba, 22,7% ráðherra í Evrópu allri voru konur og ef aðeins var litið til Norðurlanda, þá voru konur 49,7% ráðherra.
Auður Auðuns tók fyrst kvenna sæti á ráðherrastól hér á landi þegar hún var skipuð dóms- og kirkjumálaráðherra 1970 og gegndi hún því starfi í eitt ár. Á vef Alþingis er hægt að sjá yfirlit um alla þá sem gegnt hafa ráðherraembætti á Íslandi.
Ný ríkisstjórn frá og með 31. desember 2011 er:
- Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
- Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
- Össur Skarphéðinsson,utanríkisráðherra
- Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og samstarfsráðherra Norðurlanda
- Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra
- Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra
- Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
- Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
- Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 109 |